
Heildarhönnun að innan í sumarhúsi, nýtískulegt, hlýlegt og með góðu flæði.
- Hlutverk
- Heildarhönnun innanhúss
- Gerð
- Sumarhús
- Staðsetning
- Fljótshlíð
- Innréttingar
- Arrital
Húsið var í byggingu þegar ég fékk verkefnið, og því gerði ég heildarhönnun á rýminu að innan. Leitað var eftir að hafa rýmið nýtískulegt, hlýlegt og með góðu flæði.
Efnisvalið er gert út frá staðsetningunni og náttúrunni í kring. Litirnir eru mildir og náttúrulegir, viður er í loftinu að hluta á móti hljóðdúk, og fallegir koparlitaðir kastarar eru á móti meira áberandi hangandi ljósum.
Við leyfðum okkur að poppa hönnunina aðeins upp með fallegum litum í veggflísunum á baðherbergjunum. Allar innréttingar eru frá Arrital á Ítalíu.
Það er ekkert verk of stórt eða lítið. Katrín kemur á staðinn, tekur verkefnið út í samráði við eigendur og gerir í framhaldi tilboð í verkið.


























