
Innanhússhönnun í nýbyggingu, þar sem útsýnið fékk að njóta sín í gegnum hönnunarferlið.
- Hlutverk
- Innanhússhönnun
- Gerð
- Nýbygging
- Innréttingar
- Arrital
- Flísar
- Egill Árnason
Húsið var í byggingu þegar ég fékk það verkefni að sjá um innanhússhönnunina. Það er alltaf gleðilegt að fá verkefni á þeim tíma sem enn er hægt að breyta innra skipulaginu, og það var aðeins gert hér.
Lagt var upp með að láta fallega útsýnið frá gólfsíðu gluggunum njóta sín sem best. Eldhúsrýmið er hannað með innréttingum frá Arrital, og á eyjuna varð djúpur vínrauður litur fyrir valinu, á móti mjúkum og dekkri tón í háu innréttingunum. Í baðherbergjunum er sleginn svipaður litatónn, sem tónar vel við hreinlætistækin í mjúkum sandlit.
Allar flísar koma frá Agli Árnasyni. Það kom einstaklega vel út að nota sömu flísar á gólfið í gegnum allt húsið og poppa þær upp með mynstraðri útgáfu í mjúkum lit á arninum og á veggþykkingu inni á baði. Hljóðdúkur er á móti viðarplönkum í breytilegum stærðum meðfram gluggunum í aðalrýminu, og lýsingin er hönnuð með rýminu, þar sem litlir kastarar vinna á móti stærri ljósum sem gefa mýkt og fyllingu.
Það er ekkert verk of stórt eða lítið. Katrín kemur á staðinn, tekur verkefnið út í samráði við eigendur og gerir í framhaldi tilboð í verkið.
















