Beint í meginmál
KATRÍN ÍSFELDHafa samband
Útsýni úr íbúðinni yfir sjóinn og Esjuna

Forsíða·Verkefni·Heimili

Íbúð með flottasta útsýnið, hönnuð til að halda léttleika í gegnum rýmið.

Hlutverk
Innanhússhönnun íbúðar
Staðsetning
Skuggahverfi, Reykjavík

Íbúð í Skugganum með flottasta útsýnið. Öll hönnunin miðaðist við að halda léttleika í gegnum rýmið, og húsgögnin eru höfð færri en flottari til að skyggja ekki á útsýnið.

Niðurtekna loftið í eldhúsinu kom mjög vel út, þar sem raufin eftir því endilöngu er látin ganga út um endann, og marmaraflísarnar á veggjunum halda í bjarta og flotta léttleikann sem íbúðin hefur.

Það er ekkert verk of stórt eða lítið. Katrín kemur á staðinn, tekur verkefnið út í samráði við eigendur og gerir í framhaldi tilboð í verkið.

Hafa sambandFleiri verk í þessum flokki