
Hús frá 2006 yfirfarið, með betri hljóðvist, nýjum litum og sérteiknuðum innréttingum.
- Hlutverk
- Endurhönnun innanhúss
- Staðsetning
- Mosfellsbær
Í þessu verkefni var hús sem hannað var árið 2006 yfirfarið. Hljóðvistin var bætt með því að taka loftið niður að hluta yfir eyjunni, með hljóðvist í niðurtekna loftinu.
Allt húsið var málað í flottum litum og innréttingar teiknaðar og hannaðar fyrir svefnganginn, skrifstofuna og sjónvarpsrýmið. Húsgögnum var skipt út fyrir ný og gluggatjöldum komið fyrir, með þessum skemmtilega árangri.
Það er ekkert verk of stórt eða lítið. Katrín kemur á staðinn, tekur verkefnið út í samráði við eigendur og gerir í framhaldi tilboð í verkið.


