
Stúdíóið þar sem innréttingarnar, litirnir og efnin eru til sýnis.
- Hlutverk
- Eigið stúdíó og sýningarrými
- Staðsetning
- Reykjavík
Katrín Ísfeld Hönnunar Studio tekur að sér innanhússhönnun heimila, fyrirtækja og gistirýma, bæði hótela og gistiheimila. Stúdíóið flytur einnig inn hágæða ítalskar innréttingar og er með einkaleyfi á innréttingunum frá Arrital, sem fást hér bæði teiknaðar og innfluttar.
Hér starfa innanhússarkitektar og grafískur hönnuður, Ómar Örn Sigurðsson, sem kemur að þeim verkefnum þar sem aðkoma grafísks hönnuðar skiptir máli. Ómar er með yfir 20 ára reynslu í faginu og hefur komið að fjölda verkefna af öllum stærðargráðum.
Í stúdíóinu má sjá hönnun á lýsingu, litum, merkingum á rúðum, speglum, gardínum og listaverkum, og flottu ítölsku innréttingarnar sem eiga stóran sess á gólfinu. Verið velkomin.
Það er ekkert verk of stórt eða lítið. Katrín kemur á staðinn, tekur verkefnið út í samráði við eigendur og gerir í framhaldi tilboð í verkið.
















