Beint í meginmál
KATRÍN ÍSFELDHafa samband
Opið eldhús- og stofurými í Fjallalind með hljóðdempandi trérimlum og svölum

Forsíða·Verkefni·Heimili

Aðalhæðin tekin í gegn, opnuð í eitt rými og hljóðvistin leyst með hljóðdúk og trérimlum.

Hlutverk
Innanhússhönnun aðalhæðar
Gerð
Endurhönnun
Áhersla
Hljóðvist og opið flæði
Innréttingar
Arrital

Aðalhæðin í húsinu var öll tekin í gegn. Stór veggur var tekinn út og eldhúsrýmið opnað inn í stofu og borðstofu, og forstofuveggirnir voru líka teknir, svo forstofan gengur nú inn með ganginum og inn í aðalrýmið.

Til að ná fram góðri hljóðvist var hljóðdúkur settur í allt loftið og hljóðdempandi trérimlar notaðir, og því gátu stórar flísar farið á allt gólfið.

Eldhúsinnréttingin og baðinnréttingin eru frá Arrital, og 12 mm þykkar keramikborðplötur fá að njóta sín bæði í eldhúsi og á baði. Samspil jarðlita og áferða einkennir verkefnið og skapar þægilega og rómantíska stemningu.

Ljósmyndari: Rakel Ósk Sigurðardóttir

Það er ekkert verk of stórt eða lítið. Katrín kemur á staðinn, tekur verkefnið út í samráði við eigendur og gerir í framhaldi tilboð í verkið.

Hafa sambandFleiri verk í þessum flokki