
Eldhúsið flutt inn frá stofunni og opnað í gegn, með sérsmíðaðri eikarinnréttingu.
- Hlutverk
- Hönnun eldhúss
- Gerð
- Sérsmíði
- Staðsetning
- 107 Reykjavík
Hér var eldhúsið flutt í innra rýmið frá stofunni og opnað í gegn. Eldhúsið er bæði praktískt og stofulegt, þar sem stofan og eldhúsið eru í sama rýminu.
Innréttingin er sérsmíðuð og liturinn á eikinni sérblandaður. Koparfilma var notuð á eyjuna stofumegin og einnig inni í tækjaskápnum, sem poppar upp eldhúsið og gerir það skemmtilegt og flott. Stólarnir eftir Daníel Magnússon fara einstaklega vel við.
Það er ekkert verk of stórt eða lítið. Katrín kemur á staðinn, tekur verkefnið út í samráði við eigendur og gerir í framhaldi tilboð í verkið.



